Um okkur
Úrtak er markaður fyrir notuð úr á Íslandi.
Af hverju Úrtak?
Úrið þitt á skilið meira en að gleymast ofan í skúffu. Það á heima á úlnlið einhvers sem kann að meta það. Úrtak gerir það einfaldara og öruggara að kaupa og selja notuð úr á Íslandi: þú setur úr á sölu á nokkrum mínútum, öll samskipti fara fram hér á vefnum og persónulegar upplýsingar eru ekki sýnilegar öðrum.
Það kostar ekkert að setja úr á sölu.
Svona virkar þetta
- Seljandi setur úrið á sölu með myndum, lýsingu og verði.
- Kaupandi sendir seljanda skilaboð eða gerir tilboð.
- Þegar seljandi samþykkir tilboð er úrið merkt frátekið. Kaupandi og seljandi ganga sjálfir frá greiðslu og afhendingu.
Góð ráð fyrir örugg viðskipti
- Hittist ef þið getið, og skoðið úrið vel áður en greitt er.
- Biddu um kvittun, ábyrgðarskírteini eða þjónustusögu þegar það á við, sérstaklega fyrir dýrari úr.
- Ekki greiða fyrirfram til einhvers sem þú hefur ekki hitt, og varastu tilboð sem virðast of góð til að vera sönn.
- Ef þú ert í vafa um að úr sé ekta, fáðu úrsmið til að skoða það.
- Notaðu skilaboðin hér á vefnum. Þá þarf hvorugt ykkar að gefa upp netfang eða símanúmer fyrr en þið viljið.
- Ef eitthvað virðist grunsamlegt, smelltu á „Tilkynna auglýsingu“.
Hafa samband
Spurningar, ábendingar eða hugmyndir? Sendu okkur línu á urtak@urtak.is.