Fara beint í efni
Úrtak

Drög: texti í [hornklofum] á eftir að fylla út.

Persónuverndarstefna

Síðast uppfært: [dagsetning]. Í þessari stefnu kemur fram hvaða persónuupplýsingar Úrtak vinnur, í hvaða tilgangi, á hvaða grundvelli og hver réttindi þín eru, í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðina (GDPR).

1. Ábyrgðaraðili

[Nafn rekstraraðila], kt. [kennitala], [heimilisfang], ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga á Úrtaki.

Netfang: urtak@urtak.is.

2. Upplýsingar sem við vinnum

  • Aðgangsupplýsingar: netfang og lykilorð. Lykilorðið er geymt dulkóðað og við getum ekki séð það.
  • Prófíll: nafnið sem þú velur að birta öðrum notendum.
  • Auglýsingar: myndir, lýsingar, verð og aðrar upplýsingar sem þú setur inn.
  • Samskipti: skilaboð, tilboð og tilkynningar sem þú sendir í gegnum vefinn.
  • Tæknilegar upplýsingar: t.d. IP-tala, tegund vafra og tímasetningar innskráninga, sem eru nauðsynlegar til að reka vefinn og verjast misnotkun.

Við biðjum hvorki um kennitölu, heimilisfang, símanúmer né greiðsluupplýsingar. Við vinnum ekki viðkvæmar persónuupplýsingar.

3. Tilgangur og lagagrundvöllur

  • Að veita þjónustuna: stofna og halda utan um aðgang, birta auglýsingar og koma skilaboðum og tilboðum milli notenda. Grundvöllur: samningur við þig (skilmálarnir).
  • Að senda tilkynningar í tölvupósti, t.d. um ný skilaboð og tilboð, og nauðsynlegar upplýsingar um aðganginn. Grundvöllur: samningur við þig.
  • Að tryggja öryggi, verjast svikum og misnotkun og framfylgja skilmálum, þar á meðal að fara yfir tilkynningar. Grundvöllur: lögmætir hagsmunir okkar og notenda af öruggum vef.
  • Að fara að lögum og svara lögmætum beiðnum stjórnvalda, t.d. lögreglu. Grundvöllur: lagaskylda.

4. Hverjir sjá upplýsingarnar

  • Nafnið þitt og auglýsingarnar þínar eru öllum sýnilegar.
  • Skilaboð og tilboð sjá aðeins þú og sá sem þú átt í samskiptum við.
  • Netfangið þitt er aldrei sýnt öðrum notendum.
  • Við lesum ekki skilaboð notenda nema nauðsyn krefji, t.d. vegna tilkynningar um svik eða lögmætrar beiðni lögreglu.

Við seljum aldrei persónuupplýsingar og notum þær ekki til markaðssetningar þriðju aðila. Upplýsingar sem þú kýst að deila með öðrum notanda, t.d. símanúmer í skilaboðum, eru á þína ábyrgð.

5. Vinnsluaðilar og miðlun út fyrir EES

Við notum eftirfarandi þjónustuaðila, sem vinna upplýsingar eingöngu samkvæmt fyrirmælum okkar:

  • Supabase: gagnagrunnur, innskráning og myndageymsla. Gögnin eru hýst í Svíþjóð (innan EES).
  • Vercel: hýsing vefsins og nafnlaus talning heimsókna.
  • Resend: sending tölvupósta.

Þessir aðilar eru bandarískir og upplýsingar kunna því að berast út fyrir EES. Slík miðlun byggir á stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar ESB eða öðrum heimildum samkvæmt persónuverndarlögum.

6. Vafrakökur og talning heimsókna

Við notum aðeins nauðsynlegar vafrakökur, sem halda þér innskráðum og muna hvaða tungumál þú valdir. Þær þarfnast ekki samþykkis.

Til að vita hve margir heimsækja vefinn notum við nafnlausa talningu frá Vercel (Web Analytics). Hún notar engar vafrakökur og safnar engum upplýsingum sem rekja má til þín. Við notum engar vafrakökur til auglýsinga.

7. Hve lengi við geymum upplýsingar

  • Aðgangs- og prófílupplýsingar geymum við á meðan aðgangurinn er virkur.
  • Auglýsingar og myndir eyðast þegar þú eyðir þeim eða aðganginum.
  • Þegar þú eyðir aðganginum eyðast nafn, netfang, auglýsingar og myndir. Skilaboð sem þú hefur sent eru áfram sýnileg viðtakandanum, en ekki lengur tengd þér.
  • Afrit af gagnagrunninum geta geymt eyddar upplýsingar í takmarkaðan tíma þar til þau eru endurnýjuð.

8. Öryggi

Við gerum viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar, svo sem dulkóðaðar tengingar og aðgangsstýringu sem tryggir að notendur sjá aðeins eigin skilaboð og tilboð. Engin kerfi eru þó fullkomlega örugg. Verði öryggisbrestur sem ógnar réttindum þínum tilkynnum við hann eins og lög gera ráð fyrir.

9. Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum, krefjast takmörkunar á vinnslu og fá upplýsingarnar afhentar á tölvutæku formi.

Nafni breytir þú undir Mínar síður → Stillingar, og þar getur þú líka eytt aðganginum. Nýtt lykilorð velur þú með „Gleymt lykilorð?“ á innskráningarsíðunni.

Vegna annarra beiðna skaltu hafa samband á urtak@urtak.is.

Ef þú telur að vinnslan brjóti gegn lögum getur þú sent kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is).

10. Börn

Vefurinn er ekki ætlaður börnum yngri en 13 ára. Notendur yngri en 18 ára skulu hafa samþykki forráðamanns áður en þeir kaupa eða selja, í samræmi við skilmála Úrtaks.

11. Breytingar

Við getum uppfært þessa stefnu. Nýjasta útgáfan er alltaf aðgengileg hér á vefnum, og verulegar breytingar tilkynnum við á vefnum eða í tölvupósti.